Vikuuppgjör: Þrenna Stefáns og stórleikur Arnórs stóð upp úr

Stefán Ingi og Arnór Ingvi léku afar vel með liðum sínum í liðinni viku.
Ljósmynd/Sandefjord

Framherjinn Stefán Ingi Sigurðarson gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu fyrir Sandefjord í 6:0-stórsigri liðsins á Kristiansund í norsku úrvalsdeilidnni um nýliðna helgi. Mörkin skoraði hann öll í fyrri hálfleik og er hann nú á meðal markahæstu leikmanna í Noregi, með alls átta mörk í 11 deildarleikjum á leiktíðinni.

Keflvíkingurinn Arnór Ingvi Traustason átti frábæran leik fyrir Norrköping þegar liðið vann 3:1 sigur gegn Varnamo í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Hann skoraði einkar laglegt mark í leiknum og lagði upp annað.

Ísak Andri Sigurgeirsson, liðsfélagi Arnórs Ingva hjá Norrköping, átti einnig góðan leik og lagði upp fyrsta mark liðsins í gær. Ísak Andri er á meðal efstu manna í stoðsendingum í deildinni, með alls sex stoðsendingar.

Þá skoraði Ísak Snær Þorvalsson sitt fyrsta mark í frumraun sinni með Lyngby, þegar liðið hóf keppni í fyrstu umferð dönsku B-deildarinnar. Ísak Snær tryggði Lyngby 2:0 sigur með snyrtilegu marki undir lok leiksins.

Helstu fréttir

Guðrún Arnardóttir gekk til liðs við portúgalska liðið Braga
Brynjar Ingi Bjarnason við það að ganga í raðir Greuther Fürth í Þýskalandi
Sheffield United fylgist með Daníel Tristani
Nürnberg gerði tilboð í Andra Fannar, leikmann Bologna

Spilatími leikmanna í liðinni viku:

Bandaríkin
Dagur Dan Þórhallsson (Orlando City) kom inn á sem varamaður á 74. mínútu í 2:1 tapi gegn NYCFC í bandarísku MLS-deildinni síðasta fimmtudag.

Danmörk
Ari Leifsson (Kolding IF) lék fyrstu 43 mínúturnar þar til hann fékk beint rautt spjald í 1:0 sigri á AaB í fyrstu umferð dönsku B-deildarinnar. Rauða spjaldið fékk hann fyrir að brjóta á leikmanni AaB sem var kominn einn í gegn. Nóel Atli Arnórsson (AaB) kom við sögu í leiknum á 71. mínútu.

Daníel Leó Grétarsson (Sønderjyske) spilaði allan tímann í 1:1 jafntefli gegn AGF í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar síðasta sunnudag.

Ísak Snær Þorvaldsson (Lyngby) skoraði undir leikslok í 2:0 sigri á Esbjerg í sínum fyrsta leik með Lyngby þegar danska B-deildin fór af stað. Hann byrjaði upphaflega leikinn á varamannabekknum en kom inn á 63. mínútu. Mark hans má sjá hér.

Ólafur Dan Hjaltason (Aarhus Fremad) lék í 87. mínútur í markalausu jafntefli gegn AC Horens í fyrstu umferð dönsku B-deildarinnar. Galdur Guðmundsson (AC Horens) kom inn á sem varamaður á 77. mínútu í leiknum.

Kína
Elías Már Ómarsson (Meizhou Hakka) lék allan seinni hálfleikinn í sínum fyrsta leik í Kína þegar lið hans gerði 1:1 jafntefli við Henan í kínversku úrvalsdeildinni síðasta laugardag. Hann var nálægt því að setja mark sitt á leikinn í upphafi seinni hálfleiks þegar hann virtist hafa komið liði sínu yfir, en markið var dæmt af myndbandsdómurum.

Noregur
Eggert Aron Guðmundsson (Brann) lék allan tímann í 2:0 tapi gegn KFUM í norsku úrvalsdeildinni síðasta laugardag. Hann fékk hæstu einkunn af öllum leikmönnum Brann hjá dagblaðinu Bergens Tidende, eða 5 í einkunn. Sævar Atli Magnússon (Brann) kom inn á sem varamaður á 58. mínútu í leiknum.

Hilmir Rafn Mikaelsson (Viking) kom inn á sem varamaður á 81. mínútu í 4:2 tapi gegn Bodo/Glimt í norsku úrvalsdeildinni síðasta laugardag.

Stefán Ingi Sigurðarson (Sandefjord) átti stórleik og skoraði þrjú mörk í 6:0-stórsigri á Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni síðasta sunnudag. Hann gerði sér lítið fyrir og gerði öll mörkin í fyrri hálfleik. Mörk hans í leiknum má sjá hér.

Viðar Ari Jónsson (HamKam) lék í 90 mínútur í 1:1 jafntefli gegn Fredrikstad í norsku úrvalsdeildinni síðasta sunnudag.

Pólland
Davíð Kristján Ólafsson (Cracovia) og Gísli Gottskálk Þórðarson (Lech Poznan) áttust við þegar lið þeirra mættust í fyrstu umferð pólsku úrvalsdeildarinnar síðasta föstudag. Leiknum lauk með 4:1 sigri Cracovia. Davíð Kristján lék allan leikinn og Gísli Gottskálk lék í 62 mínútur.

Svíþjóð
Arnór Ingvi Traustason (Norrköping) og Ísak Andri Sigurgeirsson (Norrköping) voru báðir öflugir í 3:1 sigri á Varnamo í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Arnór Ingvi skoraði og lagði upp og Ísak Andri lagði einnig upp. Arnór Ingvi lék í 64 mínútur á meðan Ísak Andri lék allan leikinn. Markið og stoðsendingarnar má sjá hér.

Daníel Tristan Guðjohnsen (Malmö) lék tvo leiki í liðinni viku. Hann lék fyrstu 65 mínúturnar í 3:1 sigri á Iberia í seinni viðureign liðanna í 1. umferð forkeppni Meistardeildar Evrópu, þar sem Malmö vann einvígið samanlagt 6:2. Hann lagði upp mark í 2:0 sigri á Östers í sænsku úrvalsdeildinni síðasta laugardag og lék fyrstu 65 mínúturnar í þeim leik. Arnór Sigurðsson (Malmö) kom inn á sem varamaður á 77. mínútu gegn Östers. Stoðsendingu Daníels má sjá hér.

Gísli Eyjólfsson (Halmstads) lék síðustu mínúturnar í markalausu jafntefli gegn Hacken í sænsku úrvalsdeildinni síðasta sunnudag.

Kolbeinn Þórðarson (IFK Göteborg) lagði upp eina markið í 1:0 sigri á Sirius í sænsku úrvalsdeildinni síðasta sunnudag. Hann þurfti að fara af velli á 61. mínútu vegna bakmeiðsla. Stoðsendinguna má sjá hér.

Mikael Neville Anderson (Djurgarden) átti fínan leik í 1:0 sigri gegn Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni síðasta laugardag. Mikael lék allan leikinn en þetta var hans fyrsti heimaleikur fyrir Djurgarden sem hann gekk til liðs við fyrir nokkrum vikum. Ari Sigurpálsson (Elfsborg) lék fyrri hálfleikinn í leiknum.

Róbert Frosti Þorkelsson (GAIS) lék sinn fyrsta deildarleik í Svíþjóð þegar hann kom inn á sem varamaður á 85. mínútu í 3:0 sigri á Degerfors í sænsku úrvalsdeildinni síðasta laugardag.

Ef það vantar einhvern leikmann á listann, sendu okkur þá ábendingu á islendingavaktin@islendingavaktin.is

Fyrri frétt

Arnór og Ísak drjúgir í sigri

Næsta frétt

Jóhannes Kristinn orðaður við Rangers og Genk