Enski fréttamiðilinn The Sun greinir frá því í kvöld að enska B-deildarliðið Sheffield United fylgist grannt með Daníel Tristani Guðjohnsen, nítján ára gömlum leikmanni sænska úrvalsdeildarliðsins Malmö.
Í frétt frá The Sun kemur fram að Sheffield United hafi sent útsendara til að fylgjast með Daníel Tristani í leik gegn Iberia í undankeppni Meistaradeildarinnar á dögunum, þar sem hann vakti athygli með frammistöðu sinni.
Sheffield United var nálægt því að komast upp í ensku úrvalsdeildina á síðustu leiktíð en liðið tapaði í úrslitum umspils gegn Sunderland.
Daníel Tristan hefur spilað með yngri landsliðum Íslands en á enn eftir að fá tækifæri með A-landsliðinu. Hann átti góðan feril með unglingaliðum Gava, Barcelona og Real Madrid áður en hann gekk til liðs við Malmö árið 2022. Daníel Tristan er yngsti sonur Eiðs Smára Guðjohnsen.
Daníel Tristan lagði upp fyrra mark Malmö í 2:0-útisigri liðsins á Östers í sænsku úrvalsdeildinni í dag, en hann hefur alls fimm sinnum verið í byrjunarliði Malmö á leiktíðinni eftir 17 umferðir.