Emilía heldur áfram að skora

Emilía Kiær heldur áfram að skora í Þýskalandi.
Ljósmynd/RB Leipzig

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir skoraði þegar RB Leipzig tapaði 3:2 fyrir Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Emilía jafnaði metin í 1:1, en Hoffenheim náði að knýja fram sigur á lokakaflanum.

Emilía hefur látið að sér kveða á síðustu vikum og skorað fjögur mörk og lagt upp eitt hjá Leipzig í síðustu sjö leikjum liðsins. Þrátt fyrir það hefur liðið átt erfitt uppdráttar og tapað fimm leikjum í röð, fjórum þeirra í deildinni, og situr í 10. sæti með 13 stig eftir þrettán umferðir.

Sandra María Jessen var í byrjunarliði Köln þegar liðið tapaði 1:0 fyrir Jena. Köln er í 8. sæti deildarinnar með 18 stig. Glódís Perla Viggósdóttir var ónotaður varamaður hjá Bayern München þegar liðið vann stórsigur á HSV, 6:0, og er Bayern á toppi deildarinnar með 37 stig.

Fyrri frétt

Genoa náði ekki að stöðva Inter

Næsta frétt

Markið hjá Hákoni – Myndband