Þórir Jóhann Helgason er sagður vera á meðal þeirra leikmanna sem Sampdoria hefur til skoðunar fyrir janúargluggann, samkvæmt ítalska dagblaðinu Il Secolo XIX. Þar er fjallað um yfirvofandi breytingar hjá liðinu, sem leikur í ítölsku B-deildinni og er í mikilli þörf fyrir að snúa gengi sínu við.
Þórir er á mála hjá Lecce í ítölsku A-deildinni, en hefur lítið komið við sögu á tímabilinu. Hann hefur aðeins leikið fimm leiki og verið ónotaður varamaður í síðustu sjö deildarleikjum liðsins. Samningur hans við Lecce rennur út eftir tímabilið.
Sampdoria er í næstneðsta sæti í ítölsku B-deildinni þegar tímabilið er rétt hálfnað. Birkir Bjarnason lék með liðinu tímabilið 2013-14 í ítölsku A-deildinni.
Í síðasta mánuði var Þórir orðaður við Brann í Noregi á Fótbolti.net. Þar er Freyr Alexandersson við stjórnvölinn og með liðinu leika Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon.