Eyjamaðurinn búinn að stimpla sig vel inn

Frammistaða Tómasar hefur vakið athygli í Skotlandi að undanförnu.
Ljósmynd/Hearts

Tómas Bent Magnússon lék allan leikinn þegar Hearts vann Falkirk, 2:0, á útivelli í skosku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Þetta var þriðji leikurinn í röð sem Eyjamaðurinn spilar allan leikinn fyrir Hearts, eftir að hafa lítið komið við sögu framan af tímabilinu.

Með sigrinum er Hearts á toppi deildarinnar með 38 stig, sex stigum á undan Celtic, sem þó á tvo leiki til góða. Hearts hefur nú unnið tvo leiki í röð eftir erfiðan kafla þar á undan, þar á meðal útisigur á Celtic.

Frammistaða Tómasar hefur vakið athygli í Skotlandi að undanförnu. Í umfjöllun Hearts Standard í síðustu viku var hann sagður hafa skilað mögulega sínum besta leik í treyju Hearts, þar sem hann var óþreytandi á miðsvæðinu, hélt boltanum vel og studdi sóknina af krafti.

Þjálfari Hearts hrósaði Tómasi jafnframt fyrir að hafa sinnt mismunandi hlutverkum á miðjunni í síðustu leikjum og tekið vel við þeim verkefnum sem honum hafa verið falin.

Fyrri frétt

Orðaður við Sampdoria

Næsta frétt

Fiorentina áfram í vondum málum