Hákon Arnar Haraldsson var á skotskónum þegar Lille vann ævintýralegan 4:3-útisigur á Auxerre í frönsku úrvalsdeildinni í dag. Hákon kom Lille yfir strax á 9. mínútu og var það eina mark fyrri hálfleiksins í leik sem einkenndist af miklu fjöri og dramatík.
Lille lék manni færri stóran hluta leiksins eftir rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks, en seinni hálfleikurinn varð sannkallaður markaleikur þar sem sex mörk voru skoruð og þrjú rauð spjöld til viðbótar fóru á loft. Auxerre náði forystu um stund, en Lille svaraði af krafti og tryggði sér sigurinn á lokamínútunum.
Með sigrinum fór Lille upp í þriðja sæti deildarinnar með 32 stig eftir 16 umferðir. Hákon er markahæsti leikmaður Lille í deildinni á tímabilinu með fimm mörk, ásamt Hamza Igamane.