Ari Leifsson fékk að líta beint rautt spjald þegar lið hans Kolding tók á móti AaB frá Álaborg í fyrstu umferð dönsku B-deildarinnar í dag.
Ari fékk rauða spjaldið á 43. mínútu leiksins þegar hann braut á leikmanni AaB sem var kominn einn í gegn.
Það kom þó ekki að sök því Kolding skoraði í seinni hálfleik og reyndist það eina mark leiksins, 1:0. Nóel Atli Arnórsson kom inn á sem varamaður á 73. mínútu hjá AaB í leiknum.
Rauða spjaldið má sjá hér að neðan.