Laglega afgreitt hjá Viktori – Myndband

Viktor Bjarki skoraði laglegt mark um nýliðna helgi.
Ljósmynd/FC Kaupmannahöfn

Viktor Bjarki Daðason skoraði annað mark FC Kaupmannahafnar þegar liðið tók á móti Esbjerg á Parken í seinni leik liðanna í dönsku bikarkeppninni í fyrradag. Markið kom á 67. mínútu þegar Viktor var vel staðsettur í vítateignum og kláraði af öryggi eftir að hafa fengið boltann fyrir markið.

Markið innsiglaði sigur heimamanna og tryggði FC Kaupmannahöfn sæti í undanúrslitum keppninnar. Viktor Bjarki, sem er aðeins 17 ára gamall, skoraði alls þrjú mörk í einvíginu gegn Esbjerg og hefur nú skorað sex mörk í fjórtán leikjum fyrir aðalliðið.

Markið hans um nýliðna helgi má sjá hér að neðan.

Fyrri frétt

Markið hjá Hákoni – Myndband

Næsta frétt

Andri skoraði í kærkomnum sigri – Myndband