Myndbandsdómarar dæmdu mark af Elíasi

Elías Már var nálægt því að skora í sínum fyrsta leik í Kína.
Ljósmynd/csl-china.com

Elías Már Ómarsson lék í dag sinn fyrsta leik fyrir Meizhou Hakka þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Henan í kínversku úrvalsdeildinni.

Elías Már, sem gekk í raðir Meizhou Hakka í síðustu viku, byrjaði leikinn á varamannabekknum en lék allan seinni hálfleikinn. Hann var nálægt því að setja mark sitt á leik­inn strax á 46. mínútu þegar hann virtist hafa komið Meizhou Hakka í 1:0 en markið var dæmt af eft­ir skoðun í VAR, þar sem bolt­inn fór ekki all­ur yfir lín­una. Atvikið má sjá hér að neðan.

Meizhou Hakka situr í 14. sæti í kínversku úrvalsdeildinni, aðeins fimm stigum frá fallsæti.

Fyrri frétt

Dýrkaðir og dáðir í Gautaborg

Næsta frétt

Fékk rautt í fyrsta leik tímabilsins