Lagði upp sigurmarkið

Kolbeinn Þórðarson lagði upp eina markið í sigri IFK Gautaborgar.
Ljósmynd/IFK Göteborg

Kolbeinn Þórðarson lagði upp eina markið í 1:0-útisigri IFK Gautaborgar á Sirius í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Markið skoraði David Kruse eftir hornspyrnu þar sem Kolbeinn skallaði boltann í aðdragandanum eftir rúmlega klukkutíma leik, sem má sjá hér að neðan. Kolbeinn var síðan tekinn af velli á 61. mínútu.

Kolbeinn hefur verið mikilvægur í liði IFK Gautaborgar á leiktíðinni en liðið er sem stendur í 7. sæti deildarinnar með 25 stig eftir 16 leiki. Kolbeinn hefur leikið 13 deildarleiki á leiktíðinni og skorað í þeim fjögur mörk og lagt upp eitt mark.

Fyrri frétt

Sheffield United fylgist með Daníel

Næsta frétt

Ísak skoraði í sínum fyrsta leik með Lyngby