Það tók Ísak Snæ Þorvaldsson aðeins 25 mínútur að skora sitt fyrsta mark fyrir danska liðið Lyngby sem hann gekk til liðs við á dögunum.
Ísak Snær skoraði annað mark Lyngby á 88. mínútu í 2:0-útisigri liðsins gegn Esbjerg í dönsku B-deildinni í dag. Hann byrjaði leikinn á varamannabekknum en kom inn á 62. mínútu. Þetta var fyrsti leikur Lyngby á leiktíðinni.
Ísak Snær gekk í raðir Lyngby á lánssamningi sem gildir til loka leiktíðarinnar. Hann kom frá norska liðinu Rosenborg en ákvæði eru í samningnum að Lyngby geti samið við hann til frambúðar eftir tímabilið.