Skoraði þrennu í fyrri hálfleik – Sjáðu mörkin

Stefán Ingi er að eiga sann­kallaðan stór­leik fyrir Sandefjord í norsku úrvalsdeildinni.
Ljósmynd/Sandefjord

Stefán Ingi Sigurðarson er að eiga sann­kallaðan stór­leik fyrir Sandefjord í leik gegn Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni.

Stefán Ingi gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í fyrri hálfleik en staðan í leikhléi er 4:0 fyrir Sandefjord. Hann skoraði fyrsta markið með skalla á 8. mínútu og á 23. mínútu skoraði hann með bringunni, áður en hann skoraði laglegt mark á 39. mínútu þegar hann átti gott skot í hægra neðra hornið.

Stefán Ingi er nú kominn með átta mörk í 11 deildarleikjum með Sandefjord sem er í 6. sæti norsku úrvalsdeildarinnar.

Sjá má mörk Stefáns í leiknum hér að neðan.

Fyrri frétt

Ísak skoraði í sínum fyrsta leik með Lyngby

Næsta frétt

Laglegt mark Ísaks – Myndband