Mosfellingurinn Ísak Snær Þorvaldsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Lyngby þegar liðið vann 2:0-útisigur á Esbjerg í dönsku B-deildinni í dag.
Markið hjá Ísaki var einkar laglegt en hann fór illa með varnarmann Esbjerg og afgreiddi færið vel á 88. mínútu leiksins, sem má sjá hér að neðan.
Þetta var fyrsti leikur Lyngby á leiktíðinni í dönsku B-deildinni en liðið féll úr dönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Ísak Snær gekk í raðir Lyngby á dögunum á lánssamningi frá norska liðinu Rosenborg sem gildir út leiktíðina.