Nürnberg gerir tilboð í Andra Fannar

Nürnberg hefur gert tilboð í Andra Fannar, miðjumann ítalska liðsins Bologna.
Ljósmynd/bolognafc.it

Þýska B-deildarliðið Nürnberg hefur gert tilboð í Andra Fannar Baldursson, miðjumann ítalska liðsins Bologna, samkvæmt Bild í Þýskalandi.

Frá þessu er greint á áskriftarvef Bild í dag en talið er að tilboðið hljóði upp á 500 þúsund evrur, sem jafngildir um 70 milljónum íslenskra króna.

Einnig er greint frá því að Andri Fannar sé með samningstilboð í höndum frá Nürnberg sem hefur hafið viðræður við Bologna um möguleg félagaskipti.

Bologna nýtti sér á dögunum ákvæði í samningi Andra Fannars og framlengdi við hann um eitt ár.

Andri Fannar hefur síðustu ár leikið með liðunum FC Kaupmannahöfn, NEC Nij­me­gen og Elfsborg þar sem hann hefur verið í láni frá Bologna.

Fyrri frétt

Laglegt mark Ísaks – Myndband

Næsta frétt

Davíð Snorri leikgreinir Salzburg fyrir Brann