Norska liðið Brann undirbýr sig nú fyrir mikilvægt einvígi gegn austurríska stórliðinu RB Salzburg í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Til að styrkja undirbúninginn hefur liðið fengið Davíð Snorra Jónasson til liðs við sig en þetta kemur fram í dagblaðinu Bergens Tidende í dag.
Davíð Snorri er aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins og hefur mikla reynslu af greiningarvinnu. Hann mun aðstoða við að leikgreina Salzburg og undirbúa Brann sem best fyrir verkefnið.
Davíð Snorri hefur áður unnið náið með Frey Alexanderssyni, þjálfara Brann, og verður nú hluti af teyminu í forkeppninni, án þess að koma að daglegu starfi félagsins.
Fyrri leikurinn fer fram á Brann Stadion í Bergen á miðvikudaginn kemur, þar sem 17 þúsund áhorfendur eru væntanlegir.
RB Salzburg-liðið er þekkt fyrir tæknilegan og hraðan leik, en Brann hyggst spila sinn leik og reyna að koma sér góða í stöðu fyrir seinni leikinn í Austurríki sem fer fram þann 30. júlí.