Ungur Húsvíkingur í Lyngby

Jakob Gunnar gekk í dag til liðs við danska liðið Lyngby á lánssamningi frá KR.
Ljósmynd/Lyngby

Ungi Húsvíkingurinn Jakob Gunnar Sigurðsson gekk í dag til liðs við danska liðið Lyngby á lánssamningi frá KR.

Lánssamningurinn gildir út júní á næsta ári en Jakob Gunnar mun koma til með að leika með U19 liði Lyngby.

Jakob Gunnar, sem er 18 ára, hefur leikið með Þrótti Reykjavík í 1. deildinni á þessari leiktíð, þar sem hann skoraði fjögur mörk í 12 leikjum.

Jakob Gunnar vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína með Völsungi í 2. deildinni á síðustu leiktíð en hann skoraði þá alls 25 mörk og varð markahæsti leikmaður deildarinnar. Eftir leiktíðina í fyrra var hann keyptur til KR.

Fyrri frétt

Davíð Snorri leikgreinir Salzburg fyrir Brann

Næsta frétt

Arnór og Ísak drjúgir í sigri