Guðrún Arnardóttir er orðin leikmaður portúgalska liðsins Braga en það var staðfest á opinberri heimasíðu liðsins í dag.
Guðrún kemur til liðsins frá Svíþjóðarmeisturunum Rosengård, eftir að hafa leikið þar síðustu fjögur ár. Guðrún gerði tveggja ára samning við Braga.
Guðrún verður liðsfélagi Ásdísar Karenar Halldórsdóttur, sem kom til Braga fyrr í þessum mánuði. Braga endaði í þriðja sæti í portúgölsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
„Liðið hefur tekið miklum framförum síðustu árin og ég er virkilega spennt að vera komin hingað. Ég þurfti á einhverju nýju að halda, nýrri áskorun fyrir sjálfa mig. Braga er kjörinn vettvangur fyrir mig til að halda áfram að þróast,“ sagði Guðrún.