Oliver Stefánsson var kynntur sem nýr leikmaður pólska liðsins GKS Tychy í dag en hann gengur í raðir liðsins frá ÍA.
Oliver, sem er 22 ára varnarmaður, er uppalinn á Akranesi og hefur leikið alls 84 leiki fyrir ÍA og Breiðablik síðustu ár. Oliver lék áður með U19 liði Norrköping í Svíþjóð.
GKS Tychy er í pólsku B-deildinni og endaði í 7. sæti á síðustu leiktíð og keppni í deildinni hefst aftur á ný um þessa helgi.
„Starfsmaður frá félaginu heimsótti mig persónulega og ég fékk tækifæri til að tala lengi við hann. Ég átti líka mjög góða upplifun af samtali mínu við þjálfarann. Þeir voru mjög sannfærandi varðandi ákvörðun mína um að ganga í raðir liðsins, því ég vissi strax hvaða hlutverk ég ætti að gegna og hvernig liðið væri,“ sagði Oliver.