Hefur mikla trú á Alberti

Nýr knattspyrnustjóri Fior­ent­ina hefur mikla trú á Alberti.
Ljósmynd/Facebook@ACF Fiorentina

Stefano Pi­oli, nýr knattspyrnustjóri ítalska A-deildarliðsins Fior­ent­ina, talaði vel um Albert Guðmundsson, leikmann liðsins, þegar hann sat fyrir svörum blaðamanna í dag.

Albert var í sumar keyptur til Fior­ent­ina á 13 milljónir evra en hann lék með liðinu á síðustu leiktíð á lánssamningi frá Genoa.

Albert leikur í fremstu víglínu og talsverð samkeppni verður um framherjastöðurnar hjá Fior­ent­ina, en Pi­oli hefur mikla trú á Alberti.

„Albert er gæðaleikmaður, bæði klár og útsjónarsamur. Hann hefur hæfileika til að finna pláss og leysa úr erfiðum aðstæðum. Hann er sterkur og ég hef mikla trú á honum,“ sagði Pi­oli.

Fyrri frétt

Andri Fannar orðaður við Nürnberg

Næsta frétt

Oliver til Póllands