Þýska 1. deildarliðið Nürnberg hefur áhuga á að fá Andra Fannar Baldursson til liðs við sig, að því er fram kemur í þýska fréttamiðlinum Bild í dag.
Andri Fannar var í fyrradag sagður vera á leið til ítalska B-deildarliðisns Frosinone, en fotbolti.net greindi frá því að ekkert væri frágengið og margt annað í gangi.
Andri Fannar er samningsbundinn ítalska A-deildarliðinu Bologna sem nýtti sér ákvæði í samningi hans og framlengdi við hann um eitt ár.
Andri Fannar hefur aðeins leikið 15 leiki fyrir Bologna frá því hann gekk í raðir liðsins árið 2019, en hann hefur síðustu ár leikið með liðunum FC Kaupmannahöfn, NEC Nijmegen og Elfsborg þar sem hann hefur verið í láni frá Bologna.
Nürnberg lenti í 10. sæti af 18 liðum í þýsku 1. deildinni á síðustu leiktíð. Þýska goðsögnin Miroslav Klose er knattspyrnustjóri liðsins. Rúrik Gíslason lék með liðinu á árunum 2015-2018.