Vikuuppgjör: Drauma­byrj­un hjá Sævari með Brann

Vikuuppgjör í boði Íslendingavaktarinnar.
Ljósmynd/sportskollektivet.no

Sævar Atli Magnússon átti sannkallaða draumabyrjun með Brann í sínum fyrsta leik með liðinu þegar hann skoraði þriðja mark liðsins í 3:1-heimasigri á Viking í toppbaráttuslag í norsku úrvalsdeildinni í fyrradag.

Sævar Atli byrjaði leikinn á varamannabekknum en kom inn á 67. mínútu. Það tók Sævar aðeins tíu mín­út­ur að skora þegar hann var á réttum stað á fjærstönginni og stangaði boltann í netið. Markið er hér að neðan.

Þau færðu sig um set

Ísak Snær gekk til liðs við Lyngby. Ljósmynd/Lyngby

Fimm leikmenn færðu sig um set í liðinni viku:

Kristian genginn í raðir Twente
Ísak kominn til Lyngby
Óttar kom­inn með nýtt lið á Ítalíu
Elías kynnt­ur form­lega hjá Meizhou Hakka
Diljá Ýr samdi við Brann

Spilatími leikmanna

Alls fimmtán leikmenn komu við sögu með sínum félagsliðum í liðinni viku. Ekki er farið yfir æfingaleiki hjá leikmönnum. Þess má geta að hlé er í öllum þeim deildum sem íslenskar knattspyrnukonur leika í vegna evrópumótsins í Sviss.

Bandaríkin

Dagur Dan Þórhallsson (Orlando City) kom inn á sem varamaður á 76. mínútu í 1:1 jafntefli gegn CF Montreal í bandarísku MLS-deildinni síðasta laugardag.

Noregur – norska úrvalsdeildin

Brynjar Ingi Bjarnason (HamKam) lék allan leikinn í 2:0 tapi gegn Rosenborg síðasta sunnudag.

Eggert Aron Guðmundsson (Brann) lék allan leikinn í 3:1 sigri gegn Viking síðasta sunnudag. Sævar Atli Magnússon (Brann) kom inn á sem varamaður á 67. mínútu og innsiglaði sigurinn með skallamarki. Hilmir Rafn Mikaelsson (Viking) kom inn á sem varamaður á 71. mínútu í leiknum.

Stefán Ingi Sigurðarson (Sandefjord) lék fyrri hálfleikinn í 2:0 tapi gegn Bodo/Glimt síðasta laugardag.

Sveinn Aron Guðjohnsen (Sarpsborg) kom inn á sem varamaður á 81. mínútu í 0:0 jafntefli gegn Kristiansund síðasta sunnudag.

Svíþjóð – sænska úrvalsdeildin og undankeppni Meistaradeildarinnar

Arnór Ingvi Traustason (Norrköping) lék allan tímann í 3:1 tapi gegn Malmö síðasta laugardag. Ísak Andri Sigurgeirsson (Norrköping) lék einnig allan leikinn. Arnór Sigurðsson (Malmö) kom inn á sem varamaður á 78. mínútu.

Daníel Tristan Guðjohnsen (Malmö) lék fyrstu 62 mínúturnar í 3:1 sigri gegn Iber­ia í undan­keppni Meist­ara­deild­ar­inn­ar síðasta þriðjudag. Daníel fékk höfuðhögg í leiknum og var fjarverandi gegn Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni síðasta laugardag.

Gísli Eyjólfsson (Halmstad) lék seinni hálfleikinn í 4:1 tapi gegn Hacken síðasta sunnudag. Gísli átti góða innkomu af varamannabekknum og lagði upp eina mark Halmstad í leiknum, sem má sjá hér að neðan.

Kolbeinn Þórðarson (IFK Gautaborg) lék allan tímann í 2:1 tapi gegn Elfsborg síðasta laugardag. Júlíus Magnússon (Elfsborg) byrjaði á varamannabekknum í leiknum og kom inn á 57. mínútu.

Mikael Neville Anderson (Djurgarden) lék allan seinni hálfleikinn í 1:0 tapi gegn IFK Varnamo síðasta sunnudag.

Ef það vantar einhvern leikmann á listann, sendu okkur þá ábendingu á islendingavaktin@islendingavaktin.is

Fyrri frétt

Andri Fannar sagður á leið til Frosinone

Næsta frétt

Andri Fannar orðaður við Nürnberg