Kristian Hlynsson er genginn í raðir hollenska úrvalsdeildarliðsins Twente og hefur gengið frá fjögurra ára samningi við liðið að því er fram kemur á vef félagsins í dag. Kaupverðið er talið nema um 2 milljónum evra eða sem nemur tæplega 300 milljónum króna, samkvæmt hollenska miðlinum NU.
Kristian var samningsbundinn Ajax sem hann gekk til liðs við fyrir fimm árum en hann var síðan lánaður til Sparta Rotterdam á seinni hluta síðasta tímabils, þar sem hann lék 14 leiki, skoraði tvö mörk og átti þrjár stoðsendingar.
Kristian var fastamaður hjá Ajax tímabilið 2023-24 og skoraði alls sjö mörk í 25 leikjum í hollensku úrvalsdeildinni. Kristian hefur alls leikið 43 leiki í hollensku úrvalsdeildinni, en hann lék um 90 leiki fyrir varalið Ajax í B-deildinni í Hollandi.
Kristian, sem er 21 árs, leikur sem miðjumaður og á að baki fjóra leiki með A-landsliðinu.
„Að mínu mati er þetta frábært tækifæri fyrir mig. Twente er öflugt félag með frábæra stuðningsmenn. Mig langar að sanna mig hér. Ég hafði það að markmiði að ganga til liðs við félag snemma sumars og taka fullan þátt í undirbúningstímabilinu,“ sagði Kristian í tilkynningu frá liðinu.