Mosfellingurinn Ísak Snær Þorvaldsson er kominn til danska liðsins Lyngby á lánssamningi sem gildir til loka leiktíðarinnar. Kemur hann frá norska liðinu Rosenborg en ákvæði eru í samningnum að Lyngby geti samið við hann til frambúðar eftir tímabilið.
Ísak Snær, sem er 24 ára framherji, kom aðeins komið við sögu í fimm leikjum með Rosenborg í norsku úrvalsdeildinni á leiktíðinni.
Lyngby mun leika í dönsku B-deildinni á næstu leiktíð eftir að hafa fallið úr dönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Fyrsti leikur Lyngby á komandi leiktíð verður þann 20. júlí.
Ísak Snær hefur verið í Lyngby síðustu daga og hlakkar til að koma sér almennilega af stað.
„Ég tel þetta vera spennandi tækifæri fyrir mig að koma hingað til Lyngby. Þetta er hefðbundið félag og gott lið sem mér finnst eiga heima í úrvalsdeildinni. Ég er kominn hingað til að leggja mitt af mörkum til að Lyngby komist þangað aftur,“ sagði Ísak.