Andri Fannar sagður á leið til Frosinone

Andri Fannar Baldursson er að öllu óbreyttu á leið til ítalska liðsins Frosinone.
Ljósmynd/bolognafc.it

Andri Fannar Baldursson, leikmaður Bologna á Ítalíu, er að öllu óbreyttu á leið til ítalska liðsins Frosinone, samkvæmt ítalska blaðamanninum Nicolo Schira.

Samkvæmt frétt Fotbolta.net í dag er hins vegar ekkert frágengið í mögulegum félagaskiptum Andra Fannars og margt annað í gangi. 

Andri, sem er 23 ára miðjumaður, gekk í raðir Bologna árið 2019 en hefur aðeins leikið 15 leiki fyrir liðið. Hann hefur síðustu ár leikið með liðunum FC Kaupmannahöfn, NEC Nij­me­gen og Elfsborg þar sem hann hefur verið í láni frá Bologna.

Fros­in­o­ne var í fall­bar­áttu í ítölsku B-deildinni á síðustu leiktíð og endaði í 15. sæti.

Fyrri frétt

Skoraði með skalla gegn toppliðinu - Sjáðu markið

Næsta frétt

Vikuuppgjör: Drauma­byrj­un hjá Sævari með Brann