Diljá Ýr samdi við Brann

Diljá Ýr Zomers skrifaði í dag undir samn­ing við norska úr­vals­deild­ar­liðið Brann.
Ljósmynd/brann.no

Diljá Ýr Zomers skrifaði í dag undir samn­ing við norska úr­vals­deild­ar­liðið Brann. Diljá gerði samning við liðið til ársins 2027.

Diljá Ýr, sem er 23 ára sóknarmaður, kem­ur frá belg­íska liðinu OH Leu­ven en hún lék með því síðustu tvö ár og varð meist­ari með liðinu í belgísku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Diljá Ýr lék með FH, Stjörnunni og Val áður en hún fór í atvinnumennsku. Þá lék hún með liðunum Häcken og Norrköping í Svíþjóð áður en hún fór til Belgíu.

Hún á að baki 20 A-lands­leiki og var í landsliðshópn­um sem fór á EM í Sviss í sum­ar.

Fyrri frétt

Elías kynnt­ur form­lega hjá Meizhou Hakka

Næsta frétt

Hákon funheitur á undirbúningstímabilinu