Knattspyrnumaðurinn Elías Már Ómarsson hefur verið formlega kynntur til leiks hjá kínverska liðinu Meizhou Hakka. Elías gerir eins árs samning við liðið.
Elías Már kom til Kína í fyrradag og fékk góðar móttökur frá stuðningsmönnum Meizhou Hakka. Elías Már kemur til liðsins á frjálsri sölu en hann lék síðast með hollenska liðinu NAC Breda og samningur hans þar rann út í síðasta mánuði.
Meizhou Hakka er í 14. sæti í kínversku úrvalsdeildinni af 16 liðum með 12 stig eftir 16 umferðir.
Elías Már gæti leikið sinn fyrsta leik með liðinu um næstu helgi þegar Meizhou Hakka fer í heimsókn til Henan FC.