Óttar Magnús Karlsson er genginn til liðs við ítalska C-deildarliðið AC Renate. Óttar kemur til liðsins á frjálsri sölu en hann lék með SPAL á síðustu leiktíð í ítölsku C-deildinni.
Óttar Magnús skrifaði í dag undir samning við Renate, til eins árs, með möguleika á framlengingu. Félagið tilkynnti félagaskiptin á Instagram síðu sinni í dag.
Óttar Magnús, sem er 28 ára, hóf ferilinn hjá Víkingi Reykjavík áður en hann hélt til Ajax. Ferill hans hefur falið í sér tímabil í Hollandi, Noregi, Svíþjóð, Ítalíu og Bandaríkjunum. Hann vakti athygli með frábæru tímabili hjá Oakland Roots í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum þar sem hann skoraði 19 mörk í 30 leikjum.