Jóhannes Kristinn orðaður við Rangers og Genk

Jóhannes Kristinn er orðaður við skoska liðið Glasgow Rangers og belgíska liðið Genk.
Jóhannes Kristinn var hjá Norrköping árin 2021-23.Ljósmynd/Norrköping

Jóhannes Kristinn Bjarnason, leikmaður KR, er orðaður við skoska úrvalsdeildarliðið Glasgow Rangers og belgíska úrvalsdeildarliðið Genk.

Vefmiðilinn Sport Witness greinir frá þessu og vitnar í ítalska miðilinn PrimaVercelli þar sem fram kemur að Jóhannes Kristinn hafi vakið athygli margra hollenskra liða og einnig vakið áhuga frá bæði Rangers og Genk.

Fotbolti.net greindi frá því í síðustu viku að Jóhannes Kristinn hafi skoðað aðstæður hjá ítalska C-deildarliðinu Pro Vercelli, en ákveðið að halda ekki áfram viðræðum við liðið og muni þess í stað skoða aðra möguleika.

Jóhannes Kristinn er samningsbundinn KR út árið og hefur hann skorað sex mörk í 13 deildarleikjum og lagt upp önnur þrjú fyrir liðið í Bestu deildinni á yfirstandandi leiktíð. Hann var áður hjá sænska liðinu Norrköping, þar sem hann lék með U19 ára liði félagsins og kom við sögu í einum deildarleik hjá aðalliðinu.

Jóhannes Kristinn er sonur Bjarna Guðjónssonar sem lék með Genk á árunum 1998-2000.

Fyrri frétt

Vikuuppgjör: Þrenna Stefáns og stórleikur Arnórs stóð upp úr

Næsta frétt

Orri fær traustið hjá Real Sociedad