Orri Steinn Óskarsson gæti leikið stórt hlutverk með Real Sociedad á komandi tímabili í spænsku úrvalsdeildinni, en Sergio Francisco, sem var nýverið ráðinn aðalþjálfari liðsins, lýsti í dag yfir miklu trausti til unga framherjans í viðtali við spænska fjölmiðla.
„Ég hef mikla trú á Orra. Hann vakti strax athygli mína, bæði þegar ég þjálfaði varaliðið og fylgdist með honum á æfingum aðalliðsins. Það er augljóst að hann er leikmaður sem getur lagt mikið af mörkum fyrir liðið,“ sagði Francisco.
Hann bætti við að Orri hafi það sem þarf til að skora mörk og að félagið verði að sýna honum það traust sem hann á skilið.
„Hann er einn af þeim sem hefur getu til að skora inni í teig og það er mjög verðmætur eiginleiki fyrir liðið. Ef við ætlum að skora fleiri mörk, þá verður Orri að vera mikilvægur leikmaður á þessu tímabili,“ sagði Francisco ennfremur.
Orri Steinn var síðasta sumar keyptur til Real Sociedad frá danska úrvalsdeildarliðinu FC Kaupmannahöfn á 20 milljónir evra.
Hann lék 37 leiki fyrir spænska liðið í öllum keppnum á síðasta tímabili og skoraði í þeim leikjum sjö mörk.