Daníel gerir fimm ára samning við Midtjylland

Daníel Freyr hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Midtjylland.
Ljósmynd/Midtjylland

Daníel Freyr Kristjánsson hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við danska úrvalsdeildarliðið Midtjylland.

Samningurinn gildir til sumarsins 2030. Daníel hefur verið á mála hjá danska stórliðinu undanfarin ár og vakti mikla athygli á síðasta tímabili þegar hann lék með FC Fredericia á lánssamningi.

Daníel Freyr, sem er 19 ára, var fastamaður í byrjunarliði Fredericia og tók þátt í 33 leikjum þegar liðið tryggði sér sæti í dönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Hann mun leika á lánssamningi með Fredericia áfram á þessari leiktíð, en einni umferð er lokið í dönsku úrvalsdeildinni.

Midtjylland lýsir mikilli ánægju með framlenginguna og segir Daníel vera dæmi um leikmann sem hefur tekið stórt skref í átt að atvinnumennsku.

Daníel Freyr hefur leikið 35 leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur verið fastamaður í U21 ára landsliði Íslands.

Fyrri frétt

Orri fær traustið hjá Real Sociedad

Næsta frétt

Gísli lék í sigri gegn uppeldisfélaginu