Gísli Gottskálk Þórðarson, Arnór Sigurðsson og Guðmundur Þórarinsson voru í eldlínunni með liðum sínum í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Gísli byrjaði á varamannabekknum en kom inn á 43. mínútu þegar lið hans Lech Poznan vann 7:1 stórsigur á Breiðabliki í Póllandi. Gísli er uppalinn í Breiðabliki og mun seinni leikur liðanna fara fram í Kópavogi í næstu viku, eða þann 30. júlí.
Arnór lék síðustu tuttugu mínútunar með Malmö þegar liðið vann 4:1-útisigur gegn RFS. Daníel Tristan Guðjohnsen var ónotaður varamaður hjá Malmö.
Guðmundur lék þá einnig síðustu tuttugu mínúturnar fyrir lið sitt Noah þegar það beið lægri hlut gegn Ferencvaros, 2:1.
Þá var Sverrir Ingi Ingason ónotaður varamaður í 2:0 tapi Panathinaikos gegn Rangers.