Þýska B-deildarliðið Greuther Fürth hefur fengið til sín íslenska landsliðsmanninn Brynjar Inga Bjarnason sem gengur til liðs við félagið frá norska úrvalsdeildarliðinu HamKam. Hann skrifaði undir samning til sumarsins 2027 eftir að hafa staðist læknisskoðun í gær.
Brynjar Ingi er 25 ára gamall miðvörður, 1,94 metrar á hæð, og er þekktur fyrir styrk, hraða og yfirvegaðan leikstíl. Hann hefur leikið 75 leiki í norsku úrvalsdeildinni og 17 A-landsleiki fyrir Ísland. Frá árinu 2023 var hann fastamaður í vörn HamKam og vakti athygli fyrir frammistöðu sína í Noregi.
„Hann kemur með þessa dæmigerðu skandinavísku styrkleika, er jarðbundinn, vinnusamur og ákveðinn,“ sagði Stephan Fürstner, íþróttastjóri Greuther Fürth. „Hann ákvað fljótt að koma til okkar og passar vel inn í hópinn,“ sagði Fürstner ennfremur.
Brynjar sagði að hann hafi lengi haft augastað á þýska boltanum og að ákvörðunin hafi verið auðveld þegar tækifærið kom upp. Hann mun klæðast treyju númer 25 hjá Fürth og verður hluti af liði félagsins í lokaæfingaleiknum fyrir tímabilið.
Greuther Fürth lenti í 13. sæti í þýsku B-deildinni á síðasta tímabili og liðið byrjar keppni á ný þann 3. ágúst.