Sveindís komin til Los Angeles

Sveindís mætti í borg englanna með stæl.
Ljósmynd/Angel City

Íslenska landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir kom til Los Angeles í gær eftir að hafa gengið til liðs við Angel City í efstu deild Bandaríkjanna, NWSL. Hún kemur til félagsins frá þýska stórliðinu Wolfsburg, þar sem hún lék síðustu þrjú tímabil.

Angel City er í 11. sæti af 14 liðum eftir 13 umferðir, en deildin er nú hálfnuð. Félagið var stofnað árið 2020 og tók þátt í NWSL-deildinni í fyrsta sinn árið 2022.

Sveindís var kynnt til leiks með myndbandi á Instagram-síðu félagsins, þar sem hún var sýnd nýlent í borg englanna, til mikillar ánægju stuðningsmanna.

 
 
 
 
 
View this post on Instagram
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

 

A post shared by Angel City FC (@weareangelcity)

Fyrri frétt

Brynjar orðinn leikmaður Greuther Fürth

Næsta frétt

Bologna hafnaði tilboði Nürnberg