Þýska B-deildarliðið Nürnberg hefur áhuga á að fá Andra Fannar Baldursson frá ítalska liðinu Bologna og hefur samkvæmt Bild lagt fram tilboð í leikmanninn. Fram kom að tilboðið hafi hljóðað upp á 500 þúsund evrur, sem jafngildir um 70 milljónum íslenskra króna.
Samkvæmt heimildum Orra Rafn Sigurðarsonar hefur öllum tilboðum frá þýskum félögum hins vegar verið hafnað. Bologna vill halda leikmanninum á Ítalíu og nú er líklegast að hann verði lánaður til Frosinone. Ítalski blaðamaðurinn Nicolò Schira greindi frá því í síðustu viku að Andri Fannar væri nálægt því að ganga til liðs við Frosinone.
Andri Fannar er samningsbundinn ítalska A-deildarliðinu Bologna sem nýtti sér ákvæði í samningi hans og framlengdi við hann um eitt ár. Síðast lék hann á lánssamningi hjá Elfsborg í Svíþjóð.