Ísak í liði vikunnar

Ísak Andri var valinn í lið vikunnar í sænsku úrvalsdeildinni.
Ljósmynd/NT

Sænski fjölmiðillinn TuttoSvenskan valdi Ísak Andra Sigurgeirsson í lið vikunnar eftir góða frammistöðu hans með Norrköping í vikunni.

Ísak Andri lék afar vel með Norrköping í 3:1 sigri liðsins á Varnamo í fyrradag í sænsku úrvalsdeildinni en hann lagði upp fyrsta markið snemma í leiknum.

Valið í úrvalslið vikunnar endurspeglar áhrif hans á leik Norrköping. Hann hefur verið lykilmaður í sóknarleik liðsins og er kominn með sex stoðsendingar á leiktíðinni, sem gerir hann að einum af stoðsendingahæstu leikmönnum deildarinnar.

Fyrri frétt

Bologna hafnaði tilboði Nürnberg

Næsta frétt

Lið frá Íran áhugasamt um Guðlaug Victor