Íranska liðið Persepolis er áhugasamt um að fá Guðlaug Victor Pálsson, leikmann enska liðsins Plymouth, í sínar raðir, samkvæmt heimildum Íslendingavaktarinnar.
Guðlaugur Victor er samningsbundinn enska liðinu Plymouth sem féll niður í ensku C-deildina á síðustu leiktíð. Persepolis frá Íran hefur sýnt honum áhuga og getur boðið honum góðan samning, en óvíst er hvort Guðlaugur vilji ganga í raðir liðsins. Hann hefur verið í landsliðsverkefnum með A-landsliðinu undanfarið og hugsanlegt að hann bíði eftir öðrum möguleikum.
Persepolis lenti í þriðja sæti í úrvalsdeildinni í Íran á síðustu leiktíð en fyrsti leikur liðsins á komandi leiktíð verður um miðjan ágúst.
Guðlaugur Victor lék 27 leiki fyrir Plymouth í öllum keppnum á síðustu leiktíð og hefur æft með liðinu á undirbúningstímabilinu, eins og sjá má hér að neðan.
Guðlaugur Victor, sem er 34 ára, hefur komið komið víða við á atvinnumannaferli sínum, en hann hefur leikið á Englandi, Skotlandi, Hollandi, Svíþjóð, Danmörku, Sviss, Þýskalandi, Bandaríkjunum og Belgíu.