Daníel Tristan Guðjohnsen lagði upp fyrra mark Malmö í 2:0-útisigri liðsins á Östers í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Malmö gekk á lagið og Otto Rosengren kom liðinu í 1:0 á 24. mínútu eftir undirbúning frá Daníel Tristani. Arnór Sigurðsson kom inn á sem varamaður fyrir Malmö á 77. mínútu.
Daníel Tristan var tekinn af velli í hálfleik, en hann hefur verið alls fimm sinnum í byrjunarliði Malmö á leiktíðinni eftir 17 umferðir. Malmö er í fjórða sæti deildarinnnar, sjö stigum á eftir toppliði Mjallby.