Brynjólfur Willumsson heldur áfram að gera góða hluti á undirbúningstímabilinu með liði sínu Groningen í Hollandi.
Brynjólfur jafnaði metin í 1:1 fyrir Groningen á 90. mínútu í æfingaleik gegn NEC Nijmegen í dag. Markið dugði þó ekki til því NEC Nijmegen skoraði eftir venjulegan leiktíma og vann 2:1 sigur.
Brynjólfur hefur nú skorað alls tíu mörk fyrir Groningen á undirbúningstímabilinu en fyrsti leikur liðsins í hollensku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð er gegn AZ Alkmaar þann 10. ágúst.