Jón Dagur Þorsteinnson skoraði sigurmark Hertha Berlin í 2:1-sigri á Austria Vín í æfingaleik í gær.
Jón Dagur byrjaði leikinn á varamannabekknum en lék allan seinni hálfleikinn. Staðan var 1:1 eftir venjulegan leiktíma en Jón Dagur skoraði og tryggði sigurinn á fyrstu mínútu uppbótartímans.
Markið má sjá hér að neðan.