Preston North End í ensku B-deildinni er að skoða það að greiða um 2,5 milljónir punda fyrir íslenska landsliðsframherjann Andra Lucas Guðjohnsen frá belgíska liðinu Gent, að því er Lancashire Evening Post greinir frá.
Fram kemur að tveir framherjar Preston, Daniel Jebbison og Will Keane, glími við meiðsli og að liðið sé nú að skoða það að styrkja framlínuna áður en félagaskiptaglugginn lokar um næstu mánaðarmót. Preston hóf tímabilið í gær með 1:1 jafntefli gegn QPR. Stefán Teitur Þórðarson leikur með Preston.
Andri Lucas skoraði 15 mörk fyrir Lyngby í Danmörku tímabilið 2023-24 og fimm mörk í 32 leikjum í Belgíu í fyrra. Hann hefur leikið 34 landsleiki fyrir Ísland og skorað níu mörk og er sagður mjög áhugasamur um að flytja til Englands.
Í síðustu viku var Andri Lucas orðaður við Lech Poznań sem leikur í pólsku úrvalsdeildinni.