Andri gæti orðið liðsfélagi Gísla í Póllandi

Lech Poznań hefur áhuga á að fá framherjann Andra Lucas Guðjohnsen til liðs við sig.
Ljósmynd/Gent

Lech Poznań, eitt af stærstu félögum Póllands, hefur áhuga á að fá framherjann Andra Lucas Guðjohnsen til liðs við sig. Frá þessu er greint á vefmiðlinum Meczyki.pl í dag en liðið leitar nú leiða til að styrkja sóknarleik sinn fyrir komandi átök í pólsku úrvalsdeildinni.

Andri, sem er 23 ára, hefur verið hjá belgíska liðinu Gent í eitt ár og komið við sögu í fjölda leikja í efstu deild í Belgíu. Hann byrjaði hins vegar nýtt tímabil á bekknum í fyrsta leik tímabilisins í síðustu viku.

Gent hefur styrkt sóknarlínu sína í sumar, sem gæti haft áhrif á hlutverk Andra innan liðsins. Það gæti opnað á félagaskipti til Lech Poznań þar sem hann myndi berjast um byrjunarliðssæti, meðal annars við Mikael Ishak, aðalsóknarmann liðsins. Gísli Gottskálk Þórðarson leikur með Lech Poznań en hann gekk í raðir liðsins í byrjun þessa árs.

Samningur Andra við Gent gildir til sumarsins 2028.

Fyrri frétt

Arnór og Ísak skoruðu báðir í markaleik – Sjáðu mörkin

Næsta frétt

Elías lagði upp mark í Kína