Arnór og Ísak skoruðu báðir í markaleik – Sjáðu mörkin

Arnór Ingvi og Ísak Andri skoruðu báðir í ævintýralegum leik.
Ljósmynd/NT

Arnór Ingvi Traustason og Ísak Andri Sigurgeirsson komu Norrköping í frábæra stöðu í ævintýralegum leik gegn Brommapojkarna á útivelli en liðið tapaði að lokum 6:4 í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Karlsson skoraði fyrstu tvö mörkin fyrir Norrköping áður en Arnór skoraði laglegt mark þegar hann kom sér í gegnum vörn Brommapojkarna. Ísak Andri bætti við fjórða markinu með glæsibrag, þegar hann tók háa sendingu niður og hamraði boltanum í þaknetið. Mörkin eru hér að neðan.

Það dugði þó skammt. Brommapojkarna svöruðu með fimm mörkum í röð og tryggðu sér ótrúlegan sigur. Jónatan Guðni Arnarsson kom inn á hjá Norrköping í síðari hálfleik en Hlynur Freyr Karlsson sat á varamannabekknum hjá Brommapojkarna.

Norrköping er í 11. sæti með 19 stig, Brommapojkarna í því níunda með 22 stig.

Fyrri frétt

Genoa fylgist með Brynjólfi Darra

Næsta frétt

Andri gæti orðið liðsfélagi Gísla í Póllandi