Genoa, eitt af liðum ítölsku A-deildarinnar, er samkvæmt ítalska miðlinum La Notizia Sportiva að fylgjast með Brynjólfi Darra Willumssyni, leikmanni Groningen í Hollandi.
Fram kemur að Genoa hafi fylgst með honum undanfarið og skoði nú möguleikann á að fá hann til liðs við sig á næstunni. Genoa endaði í 13. sæti í ítölsku A-deildinni á síðustu leiktíð, en Mikael Egill Ellertsson leikur með liðinu.
Brynjólfur Darri, sem er 24 ára, gekk til liðs við Groningen á síðasta ári og er samningsbundinn liðinu til ársins 2027, með möguleika á eins árs framlengingu.
Brynjólfur hefur skorað alls tíu mörk fyrir Groningen á undirbúningstímabilinu en fyrsti leikur liðsins í hollensku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð er gegn AZ Alkmaar þann 10. ágúst.