Talsverð hreyfing hefur verið á félagaskiptum íslenskra atvinnumanna síðustu mánuði. Fjölmargir leikmenn hafa gengið til liðs við ný félög og samkvæmt þeim kaupverðum sem hafa verið opinberuð á vefnum Transfermarkt og í fjölmiðlum nemur samanlögð upphæð um 4,5 milljörðum íslenskra króna það sem af er þessu ári.
Albert Guðmundsson trónir á toppnum en hann var keyptur frá Genoa til Fiorentina fyrir 1,9 milljarð íslenskra króna. Þar á eftir kemur Ísak Bergmann Jóhannesson sem gekk til liðs við Köln frá Fortuna Düsseldorf fyrir 785 milljónir íslenskra króna og Mikael Egill Ellertsson sem fór til Genoa frá Venezia fyrir 500 milljónir íslenskra króna.
Mikael Neville Anderson var keyptur til Djurgården fyrir 286 milljónir íslenskra króna, Kristian Hlynsson til Twente fyrir 257 milljónir íslenskra króna og Júlíus Magnússon til Elfsborg fyrir 121 milljón íslenskra króna. Logi Tómasson gekk í raðir Samsunspor fyrir 100 milljónir íslenskra króna.
Þá voru Andri Fannar Baldursson, Hilmir Rafn Mikaelsson og Gísli Gottskálk Þórðarson hver um sig keyptir fyrir 71 milljón íslenskra króna. Í mörgum tilfellum liggur kaupverð ekki fyrir opinberlega, en félagaskiptin eru engu að síður fjölmörg og sýna að íslenskir leikmenn eru eftirsóttir.
Listann má sjá hér að neðan:
Albert Guðmundsson, til Fiorentina frá Genoa – 13 milljónir evra (1,9 milljarð íslenskra króna) – Transfermarkt
Ísak Bergmann Jóhannesson, til Köln frá Fortuna Düsseldorf – 5,5 milljónir evra (785 milljónir íslenskra króna) – Transfermarkt
Mikael Egill Ellertsson, til Genoa frá Venezia – 3,5 milljónir evra (500 milljónir íslenskra króna) – Transfermarkt
Mikael Neville Anderson, til Djurgården frá AGF – 2 milljónir evra (286 milljónir íslenskra króna) – Transfermarkt
Kristian Hlynsson, til Twente frá Ajax – 1,8 milljónir evra (257 milljónir íslenskra króna) – Transfermarkt
Júlíus Magnússon, til Elfsborg frá Fredrikstad – 850 þúsund evrur (121 milljón íslenskra króna) – Transfermarkt
Logi Tómasson, til Samsunspor frá Strømsgodset – 700 þúsund evrur (100 milljónir íslenskra króna) – Transfermarkt
Andri Fannar Baldursson, til Kasimpasa frá Bologna – 500 þúsund evrur (71 milljón íslenskra króna) – Quotidiano Sportivo
Hilmir Rafn Mikaelsson, til Viking Stavanger frá Venezia – 500 þúsund evrur (71 milljón íslenskra króna) – Transfermarkt
Gísli Gottskálk Þórðarson, til Lech Poznan frá Víkingi Reykjavík – 500 þúsund evrur (71 milljón íslenskra króna) – Transfermarkt
Eggert Aron Guðmundsson, til Brann frá Elfsborg – 450 þúsund evrur (64 milljónir íslenskra króna) – Transfermarkt
Brynjar Ingi Bjarnason, til Greuther Fürth frá HamKam – 250 þúsund evrur (36 milljónir íslenskra króna) – Transfermarkt
Danijel Dejan Djuric, til NK Istra frá Víkingi Reykjavík – 200 þúsund evrur (29 milljónir íslenskra króna) – Transfermarkt
Hinrik Harðarson, til Odd frá ÍA – 150 þúsund evrur (21 milljón íslenskra króna) – Transfermarkt
Cecilía Rán Rúnarsdóttir, til Inter frá Bayern Muncih – 125 þúsund evrur (18 milljónir íslenskra króna) – Soccerdonna
Jóhannes Kristinn Bjarnason, til Kolding frá KR – 70 þúsund evrur (10 milljónir íslenskra króna) – Tipsbladet
Óuppgefin kaupverð:
Alfons Sampsted, til Birmingham frá Twente – óuppgefið
Ari Sigurpálsson, til Elfsborg frá Víkingi Reykjavík – óuppgefið
Benoný Breki Andrésson, til Stockport frá KR – óuppgefið
Galdur Guðmundsson, til AC Horens frá FC Kaupmannahöfn – óuppgefið
Hlín Eiríksdóttir, til Leicester City frá Kristianstads – óuppgefið
Jónatan Guðni Arnarsson, til Norrköping frá Fjölni – óuppgefið
Kjartan Már Kjartansson, til Aberdeen frá Stjörnunni – óuppgefið
Nökkri Þeyr Þórisson, til Sparta Rotterdam frá St. Louis – óuppgefið
Oliver Stefánsson, til GKS Tychy frá ÍA – óuppgefið
Ólafur Guðmundsson, til Aalesund frá FH – óuppgefið
Róbert Frosti Þorkelsson, til GAIS frá Stjörnunni – óuppgefið
Telma Ívarsdóttir, til Rangers frá Breiðabliki – óuppgefið