Rúnar sá rautt

Rúnar Þór fékk að líta rauða spjaldið fyrir klaufalegt brot.
Ljósmynd/Skjáskot

Rúnar Þór Sigurgeirsson fékk að líta rauða spjaldið þegar lið hans Willem II steinlá gegn ADO Den Haag, 5:1, í hollensku B-deildinni í dag.

Rúnar Þór var í byrjunarliði Willem II og lék fram á 68. mínútu þegar hann fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt eftir klaufalegt brot, sem má sjá hér að neðan. Þetta var fyrsti keppnisleikur Willem II á leiktíðinni.

Helgi Fróði Ingason lék seinni hálfleikinn fyrir Helmond Sport sem tapaði 3:1 fyrir Roda JC Kerkrade í hollensku B-deildinni.

Brynjólfur Willumsson lék allan tímann í fremstu víglínu Groningen þegar liðið beið lægri hlut gegn AZ Alkmaar, 4:1, í fyrstu umferð hollensku úrvalsdeildarinnar.

Kristian Hlynsson lék allan seinni hálfleikinn fyrir Twente í 1:0 tapi liðsins gegn PEC Zwolle í hollensku úrvalsdeildinni.

Í þýsku B-deildinni kom Jón Dagur Þorsteinsson inn á sem varamaður á 68. mínútu hjá Hertha Berlin í markalausu jafntefli gegn Karlsruher SC. Hertha Berlin er með eitt stig eftir tvo leiki.

Þá var Oliver Stefánsson í fyrsta sinn í byrjunarliði GKS Tychy þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Odra Opole í pólsku B-deildinni. Oliver lék allan leikinn.

Fyrri frétt

Ísak skorar og skorar – Ólafur skoraði

Næsta frétt

Preston íhugar kaup á Andra