Gautaborg hafði betur gegn GAIS, 1:0, í nágrannaslag liðanna í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Leikið var á heimavelli GAIS í Gautaborg.
Kolbeinn Þórðarson skoraði eina mark leiksins á 12. mínútu. Hann fylgdi þá vel eftir sókn liðsins, fékk boltann í vítateignum og skaut honum af öryggi í netið. Kolbeinn fékk gult spjald á 49. mínútu og fór af velli tólf mínútum síðar. Róbert Frosti Þorkelsson var ónotaður varamaður hjá heimamönnum.
Elfsborg, með þá Ara Sigurpálsson og Júlíus Magnússon innanborðs, gerði 2:2 jafntefli við botnlið Värnamo á heimavelli. Ari lék allan síðari hálfleikinn en Júlíus kom inn á undir lokin.
Eftir leiki gærkvöldsins er GAIS fjórum stigum á eftir Elfsborg í baráttunni um Evrópusæti. Elfsborg er í þriðja sæti, tveimur stigum fyrir ofan AIK.
Mark Kolbeins er hér að neðan.