Kristall Máni Ingason hefur verið valinn í úrvalslið nóvembermánaðar í dönsku úrvalsdeildinni eftir góðar frammistöður með Sønderjyske. Hann skoraði tvö mörk og lagði upp tvö í fjórum leikjum í mánuðinum.
Sønderjyske er í 5. sæti deildarinnar eftir 17 umferðir og hefur ekki tapað síðan í lok september. Kristall hefur verið áberandi hjá liðinu á tímabilinu og er kominn með sjö mörk og þrjár stoðsendingar í sextán leikjum í öllum keppnum.
Að sögn danska blaðamannsins Farzam Abolhosseini fylgjast lið í Belgíu, Hollandi og þýsku B-deildinni grannt með framherjanum, eins og greint var frá á dögunum.