Benoný Breki Andrésson var í byrjunarliði Stockport County í gærkvöld þegar liðið mætti Crewe Alexandra í 32-liða úrslitum neðrideildabikarsins á Englandi og skoraði þar sitt fyrsta mark á tímabilinu.
Crewe komst yfir strax á upphafsmínútum en Benoný Breki jafnaði metin á 33. mínútu þegar hann skoraði af stuttu færi eftir að hafa stungið sér laglega á milli varnarmanna. Markið má sjá hér að neðan.
Benoný var tekinn af velli á 70. mínútu og lokatölur eftir venjulegan leiktíma urðu 1:1. Stockport tryggði sér þó sæti í 16-liða úrslitum með 4:1 sigri í vítaspyrnukeppni.