Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði eina mark Gwangju í bikarúrslitum í Suður-Kóreu í morgun þegar liðið tapaði 2:1 gegn Jeonbuk eftir framlengingu.
Gwangju lenti undir á lokamínútu fyrri hálfleiks, en Hólmbert jafnaði metin á 69. mínútu með skalla af stuttu færi og tryggði liðinu þannig framlengingu. Þar fékk Gwangju á sig mark í uppbótartíma fyrri hluta framlengingarinnar og lauk leiknum með sigri Jeonbuk.
Hólmbert var í byrjunarliði Gwangju og lauk þar sínu fyrsta tímabili með liðinu. Markið í dag var hans þriðja fyrir Gwangju á tímabilinu, sem má sjá hér að neðan.