Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði eitt marka Al-Qadsiah þegar liðið lagði Al-Ahli að velli, 3:2, í sádi-arabísku úrvalsdeildinni í gærkvöld.
Al-Qadsiah komst yfir snemma leiks, en Al-Ahli jafnaði metin rétt fyrir leikhlé og var staðan 1:1 í hálfleik. Sara Björk kom Al-Qadsiah aftur yfir á 65. mínútu og skömmu síðar bætti liðsfélagi hennar við þriðja markinu. Al-Ahli náði að minnka muninn í uppbótartíma, en fleiri urðu mörkin ekki.
Sara Björk hefur verið afar öflug undanfarna leiki og skorað þrjú mörk og lagt eitt upp í síðustu tveimur leikjum. Al-Qadsiah er í þriðja sæti deildarinnar með 12 stig eftir sjö umferðir, níu stigum á eftir toppliði Al-Nassr.